Á ábyrgð tryggingafélaganna

Ábyrgðartryggingar ökutækja eru skyldutryggingar. Samkvæmt lögum getur maður ekki átt og ekið bíl nema að hann sé tryggður fyrir tjóni sem hann kann að valda. Fólk á að geta treyst því að allir bílar í umferð séu tryggðir, þannig að tjón sem þeir valda verði bætt.

Síðan hvenær varð það val ? Síðan hvenær þarf hinn almenni borgari að treysta á að einhverjir slúbbertar úti í bæ tryggi bílana sína?  Reglan var alltaf sú að tryggingafélag bar ábyrgð á sínum bílum þartil þeir voru sannanlega komnir í tryggingu annars félags eða úr umferð. 

Hvenær voru tryggingafélög leyst undan þessari kvöð ? Er það ofverkið þeirra að fylgja þessu eftir ?

Eða er þetta sama sagan enn og aftur, græðgisvæðing í sinni tærustu mynd, að hirða allan pening sem hönd á festir, en bera aldrei neina ábyrgð.

 


Eiga að vera á ábyrgð tryggingarfélaganna

 

Ökutækjatrygging er skyldutrygging. Hún á að tryggja að sá sem verður fyrir tjóni geti ávallt verið viss um að fá tjón sitt bætt. Það á enginn að þurfa að sitja undir því að tjónvaldur geti verið ótryggður og að öllum líkindum ekki borgunarmaður fyrir því tjóni sem hann veldur.

Ef tryggingafélag fær starfsleyfi og þarmeð rétt til að taka að sér skyldutryggingu á það að bera ábyrgð á sínum bílum skilyrðislaust þartil þeir hafa sannanlega verið teknir í tryggingu hjá öðru félagi, eða teknir  sannanlega úr umferð. Þannig verður aldrei ótryggður bíll í umferð.

Það virðist vera að tryggingafélögin séu búin að koma sér undan þessari skyldu, en það kemur svo sem ekki á óvart í græðgisvæðingunni, hirða alla peninga sem hönd á festir en bera aldrei ábyrgð á neinu.

Það er ekki ofverkið tryggingafélaganna að láta taka ótryggða bíla úr umferð.


mbl.is 7.024 ökutæki ótryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Árni Árnason

Höfundur

Árni Árnason
Árni Árnason
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 89

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband