Eiga að vera á ábyrgð tryggingarfélaganna

 

Ökutækjatrygging er skyldutrygging. Hún á að tryggja að sá sem verður fyrir tjóni geti ávallt verið viss um að fá tjón sitt bætt. Það á enginn að þurfa að sitja undir því að tjónvaldur geti verið ótryggður og að öllum líkindum ekki borgunarmaður fyrir því tjóni sem hann veldur.

Ef tryggingafélag fær starfsleyfi og þarmeð rétt til að taka að sér skyldutryggingu á það að bera ábyrgð á sínum bílum skilyrðislaust þartil þeir hafa sannanlega verið teknir í tryggingu hjá öðru félagi, eða teknir  sannanlega úr umferð. Þannig verður aldrei ótryggður bíll í umferð.

Það virðist vera að tryggingafélögin séu búin að koma sér undan þessari skyldu, en það kemur svo sem ekki á óvart í græðgisvæðingunni, hirða alla peninga sem hönd á festir en bera aldrei ábyrgð á neinu.

Það er ekki ofverkið tryggingafélaganna að láta taka ótryggða bíla úr umferð.


mbl.is 7.024 ökutæki ótryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 identicon

Ótryggðir bílar eru á ábyrgð trygginafélaganna, eða réttara sagt okkar hinna sem borgum iðgjöldin !

Öll tryggingafélögin greiða í Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á Íslandi sf. (ABÍ) sem greiða fyrir tjón ótryggðra ökutækja.

http://www.abi.is/tjonsuppgjorsmidstod/ur-reglugerd/

Hlynur (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 09:56

2 identicon

Fréttin er sem sagt röng.  Það eru sem sagt engin ótryggð ökutæki í umferð. Þessi 7024 ökutæki eru semsagt tryggð, en það erum við hin sem borgum iðgjaldið fyrir þau.

Ef iðgjald hvers þeirra væri 100.000.- erum við, skilvísir bíleigendur, að borga yfir 700 milljónir fyrir slúbbertana. Eitthvað kostar rekstur ABÍ.  Er það lausnin? Væri ekki nær að eyða einhverju af þessum peningum í að finna þessa bíla og taka þá úr umferð, eða er það alltaf sama lausnin, að láta okkur bara borga og borga og borga og borga. 

Árni Árnason (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Árni Árnason

Höfundur

Árni Árnason
Árni Árnason
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 89

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband